Arvid Lindman
Salomon Arvid Achates Lindman (19. september 1862 – 9. desember 1936) var sænskur stjórnmálamaður og forsætisráðherra Svíþjóðar. Lindman var foringi í sænska sjóhernum og umfangsmikill iðnrekandi. Lindman var tvívegis forsætisráðherra Svíþjóðar, fyrst frá 1906 til 1911 og síðan frá 1928 til 1930. Hann sat á þingi frá 1905 til 1935.
Lindman var leiðtogi Almenna þingmannaflokksins (s. Allmänna valmannaförbundet) frá 1912 til 1935, og frá 1913 til 1935 var hann formaður Bænda- og borgaraflokksins (s. Lantmanna- och borgarepartiet), sem starfaði innan fyrrnefnds félags. Bænda- og borgaraflokkurinn var hógvær íhaldsflokkur sem starfaði sem þingflokkur í efri deild þingsins á árunum 1912 til 1934. Flokkurinn var stofnaður árið 1912 með samruna Þjóðlega framfaraflokksins (s. Nationella framstegspartiet) og Bændaflokksins (s. Lantmannapartiet). Árið 1935 sameinaðist flokkurinn Þjóðarflokknum (s. Nationella partiet), sem starfaði einnig sem þingflokkur, en í neðri deild þingsins. Sameinaður flokkur fékk nafnið Þingflokkur hægrimanna, (s. Högerns riksdagsgrupp). Síðan 1969 hefur flokkurinn borið nafnið Moderata samlingspartiets riksdagsgrupp, eða einfaldlega Moderatarna. Á Íslensku er sá flokkur er yfirleitt nefndur Hægriflokkurinn.
Forsætisráðherrar Svíþjóðar (listi) | ||
---|---|---|
Frá stofnun ríkisþingsins fram að sambandskreppunni (1876–1905) | Louis De Geer eldri · Arvid Posse · Carl Johan Thyselius · Robert Themptander · Gillis Bildt · Gustaf Åkerhielm · Erik Gustaf Boström · Fredrik von Otter · Erik Gustaf Boström · Johan Ramstedt · Christian Lundeberg | |
Frá endalokum konungssambandsins til fyrri heimsstyrjaldar (1905–1914) | ||
Frá fyrri heimsstyrjöld til seinni heimsstyrjaldar (1914-1945) | Hjalmar Hammarskjöld · Carl Swartz · Nils Edén · Hjalmar Branting · Louis De Geer yngri · Oscar von Sydow · Hjalmar Branting · Ernst Trygger · Hjalmar Branting · Rickard Sandler · Carl Gustaf Ekman · Arvid Lindman · Carl Gustaf Ekman · Felix Hamrin · Per Albin Hansson · Axel Pehrsson-Bramstorp · Per Albin Hansson | |
Kaldastríðsárin (1945–1991) | Östen Undén (til bráðabirgða) · Tage Erlander · Olof Palme · Thorbjörn Fälldin · Ola Ullsten · Thorbjörn Fälldin · Olof Palme · Ingvar Carlsson | |
Frá lokum kalda stríðsins (1991–) | Carl Bildt · Ingvar Carlsson · Göran Persson · Fredrik Reinfeldt · Stefan Löfven · Magdalena Andersson · Ulf Kristersson |
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.