José Victoriano Huerta Márquez (22. desember 1850 – 13. janúar 1916) var mexíkóskur herforingi og 35. forseti Mexíkó.
Eftir hafa gegnt herþjónustu í valdatíð einræðisherrans Porfirio Díaz varð Huerta háttsettur herforingi í lýðræðisstjórn Francisco I. Madero forseta í byrjun mexíkósku byltingarinnar. Árið 1913 lagði Huerta á ráðin gegn Madero, sem hafði treyst honum fyrir því að kveða niður minniháttar uppreisn í Mexíkóborg, steypti Madero af stóli og réð hann af dögum. Verknaður Huerta gengur undir nafninu „La Decena Tragica“ eða „grátlegu dagarnir tíu.“ Ríkisstjórn Huerta mætti strax mótspyrnu byltingarmanna og steypti þjóðinni þannig í borgarastyrjöld. Huerta neyddist því til að segja af sér og flýja landið árið 1914 eftir að ríkisherinn hafði hrunið, og hafði þá aðeins verið forseti í sautján mánuði. Í fyrri heimsstyrjöldinni tók Huerta þátt í samsæri með þýskumnjósnurum í Bandaríkjunum en var handtekinn árið 1915 og dó í haldi Bandaríkjamanna.
Stuðningsmenn Huerta voru kallaðir „Huertistar“ á meðan byltingunni stóð. Í dag líta Mexíkanar enn á Huerta sem illmenni og kalla hann gjarnan „El Chacal“ („sjakalann“) og El Usurpador („valdaræningjann“). [1]
↑McCartey, Laton. The Teapot Dome Scandal: how big oil bought the Harding White House and tried to steal the country, Random House, Inc., 2008, p. 1901.
This browser is not supported by Wikiwand :( Wikiwand requires a browser with modern capabilities in order to provide you with the best reading experience. Please download and use one of the following browsers:
Your input will affect cover photo selection, along with input from other users.
X
Get ready for Wikiwand 2.0 🎉! the new version arrives on September 1st! Don't want to wait?
Oh no, there's been an error
Please help us solve this error by emailing us at support@wikiwand.com
Let us know what you've done that caused this error, what browser you're using, and whether you have any special extensions/add-ons installed.
Thank you!