For faster navigation, this Iframe is preloading the Wikiwand page for Stríð Rússlands og Japans.

Stríð Rússlands og Japans

Stríð Rússa og Japana

Réttsælis frá efstu mynd: Skotið á rússneskt herskip við Port Arthur, rússnesk riddaraliðssveit við Mukden, rússnesku skipin Varjag og Korietz við Tsjemulpo-flóa, japanskir hermenn fallnir í valinn við Port Arthur, japanskir fótgönguliðar halda yfir Yalu-fljót.
Dagsetning8. febrúar 19045. september 1905 (1 ár, 6 mánuðir og 4 vikur)
Staðsetning
Niðurstaða Japanskur sigur. Rússar viðurkenna yfirráð Japana í Mansjúríu og láta af hendi yfirráðasvæði sín í Kína til Japana.
Stríðsaðilar
Japan Rússland
Leiðtogar
Meiji keisari Nikulás 2. keisari
Fjöldi hermanna
1.200.000 (alls) 1.365.000 (alls)
Mannfall og tjón
58.000–86.100 látnir 43.300–120.000 látnir

Stríð Rússa og Japana (Русско-японская война á rússnesku, 日露戦争 á japönsku) var stríð á árunum 1904–05 á milli rússneska keisaradæmisins og japanska keisaradæmisins vegna hugmynda beggja ríkja um landvinninga í Mansjúríu og Kóreu. Helstu vígstöðvar í stríðinu voru Liaoningskaginn og Mukden í suðurhluta Mansjúríu, Japanshaf og Gulahaf.

Rússar sóttust eftir hlýrri höfn við Kyrrahafið til þess að geyma herflota sinn og til þess að efla vöruflutninga á sjó. Höfn þeirra við Vladivostok var aðeins nothæf á sumrin vegna hafíss en höfnin Artúrshöfn, flotastöð í Liaoning héraðs sem Rússar höfðu að láni frá Kína, var nothæf allt árið um kring. Frá lokum fyrra stríðs þeirra við Kínverja árið 1895 höfðu Japanir óttast að Rússar kynnu að skipta sér af áætlunum þeirra um að skapa sér áhrifasvæði í Kóreu og Mansjúríu. Rússar höfðu rekið útþenslustefnu í austurhluta Síberíu frá valdatíð Ívans grimma á 16. öld.[1] Þar sem þeir litu á Rússa sem keppinauta buðust Japanir til að viðurkenna rússnesk yfirráð í Mansjúríu í skiptum fyrir viðurkenningu á Kóreu sem hluta af japönsku áhrifasvæði. Rússar neituðu og kröfðust þess að Kórea norðan við 39. breiddargráðu yrði hlutlaust svæði milli japanskra og rússneskra áhrifasvæða. Japanska ríkisstjórnin leit á þetta sem rússneska ógn við útþenslustefnu þeirra í Asíu og ákvað að hefja stríð. Eftir að samningaviðræður mistókust árið 1904 réðist japanski flotinn óvænt á austurhluta rússneska flotans í Artúrshöfn.

Rússar töpuðu ítrekað gegn Japönum en Nikulás 2. Rússakeisari var sannfærður um að þeir gætu unnið stríðið og ákvað að láta ekki undan. Fyrst beið hann eftir útkomum ákveðinna sjóorrusta og síðan framlengdi hann stríðið til að bjarga sæmd Rússaveldis með því að forðast „auðmýkjandi frið.“ Stríðinu lauk með friðarsáttmálum í Portsmouth sem Theodore Roosevelt Bandaríkjaforseti stóð fyrir. Fullnaðarsigur japanska hersins kom áhorfendum um allan heim í opna skjöldu. Valdajafnvægi var umbylt í Austur-Asíu og innganga Japana á alþjóðasviðið var endurmetin. Stríðið var fyrsti stórsigur Asíuveldis á Evrópuveldi með nútímahernaði.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. John Steinburg, Was the Russo-Japanese Conflict World War Zero?. bls. 2.
{{bottomLinkPreText}} {{bottomLinkText}}
Stríð Rússlands og Japans
Listen to this article

This browser is not supported by Wikiwand :(
Wikiwand requires a browser with modern capabilities in order to provide you with the best reading experience.
Please download and use one of the following browsers:

This article was just edited, click to reload
This article has been deleted on Wikipedia (Why?)

Back to homepage

Please click Add in the dialog above
Please click Allow in the top-left corner,
then click Install Now in the dialog
Please click Open in the download dialog,
then click Install
Please click the "Downloads" icon in the Safari toolbar, open the first download in the list,
then click Install
{{::$root.activation.text}}

Install Wikiwand

Install on Chrome Install on Firefox
Don't forget to rate us

Tell your friends about Wikiwand!

Gmail Facebook Twitter Link

Enjoying Wikiwand?

Tell your friends and spread the love:
Share on Gmail Share on Facebook Share on Twitter Share on Buffer

Our magic isn't perfect

You can help our automatic cover photo selection by reporting an unsuitable photo.

This photo is visually disturbing This photo is not a good choice

Thank you for helping!


Your input will affect cover photo selection, along with input from other users.

X

Get ready for Wikiwand 2.0 🎉! the new version arrives on September 1st! Don't want to wait?