Ríkislögreglustjóri
Ríkislögreglustjórinn stýrir lögreglunni á Íslandi í umboði dómsmálaráðherra. Embættið var stofnað með nýjum lögreglulögum[1] sem tóku gildi 1. júlí 1997. Um leið var Rannsóknarlögregla ríkisins lögð niður og verkefnum hennar skipt á milli ríkislögreglustjóra og annara lögreglustjóra í staðbundnum umdæmum. Ríkislögreglustjóri fer með ýmis stjórnsýsluverkefni sem varða löggæsluna í landinu, er tengiliður lögreglustjóra og dómsmálaráðherra, veitir lögreglustjórum stuðning og stýrir viðamiklum lögregluaðgerðum sem krefjast samstarfs margra lögregluliða. Ríkislögreglustjóri stjórnar einnig almannavörnum. Á vegum embættisins starfar m.a. sérstök efnahagsbrotadeild sem rannsakar efnahags- og skattabrot, alþjóðadeild sem annast alþjóðleg samskipti og rannsóknar- og greiningardeild sem rannsakar og metur hættu á hryðjuverkum og alþjóðlegri glæpastarfsemi. Á vegum ríkislögreglustjóra er einnig starfandi vopnuð sérsveit.
Núverandi ríkislögreglustjóri er Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sem skipuð var þann 12. mars árið 2020.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Lögreglulög nr. 90 13. júní 1996
- ↑ „Sigríður Björk nýr ríkislögreglustjóri“. Kjarninn. 12. mars 2020. Sótt 8. apríl 2020.
Innanríkisráðuneyti Íslands (Starfrækt frá 2011-2017) | |
---|---|
Stofnanir | Biskupsstofa • Fangelsismálastofnun ríkisins • Flugmálastjórn Íslands • Landhelgisgæslan • Lögregluskóli ríkisins • Neytendastofa • Persónuvernd • Póst- og fjarskiptastofnun • Ríkislögreglustjóri • Ríkissaksóknari • Héraðssaksóknari • Siglingastofnun Íslands • Talsmaður neytenda • Tengiliður vistheimila • Umferðarstofa • Útlendingastofnun • Vegagerðin • Þjóðskrá Íslands |
Dómstólar | |
Sýslumenn | Sýslumaðurinn á Akranesi • Sýslumaðurinn á Akureyri • Sýslumaðurinn á Blönduósi • Sýslumaðurinn í Bolungarvík • Sýslumaðurinn í Borgarnesi • Sýslumaðurinn í Búðardal • Sýslumaðurinn á Eskifirði • Sýslumaðurinn í Hafnarfirði • Sýslumaðurinn á Hólmavík • Sýslumaðurinn á Húsavík • Sýslumaðurinn á Hvolsvelli • Sýslumaðurinn á Höfn • Sýslumaðurinn á Ísafirði • Sýslumaðurinn í Keflavík • Sýslumaðurinn í Kópavogi • Sýslumaðurinn á Patreksfirði • Sýslumaðurinn í Reykjavík • Sýslumaðurinn á Sauðárkróki • Sýslumaðurinn á Selfossi • Sýslumaðurinn á Seyðisfirði • Sýslumaðurinn á Siglufirði • Sýslumaður Snæfellinga • Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum • Sýslumaðurinn í Vík |
Lögregla | Lögreglustjórinn á Akranesi • Lögreglustjórinn á Akureyri • Lögreglustjórinn á Blönduósi • Lögreglustjórinn í Borgarnesi • Lögreglustjórinn á Eskifirði • Lögreglustjórinn á Húsavík • Lögreglustjórinn á Hvolsvelli • Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu • Lögreglustjórinn á Ísafirði • Lögreglustjórinn á Sauðárkróki • Lögreglustjórinn á Selfossi • Lögreglustjórinn á Seyðisfirði • Lögreglustjórinn í Stykkishólmi • Lögreglustjórinn á Suðurnesjum • Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum |
Hlutafélög | ISAVIA • Neyðarlínan |
Rannsóknarnefndir |
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.