Lára miðill
Ingibjörg Lára Ágústsdóttir (oftast nefnd Lára miðill) (15. apríl 1899 – 6. febrúar 1971) var íslenskur miðill sem varð uppvís að svikum árið 1940 og var dæmd í eins árs fangelsi. Lára ólst upp hjá Ingibjörgu Einarsdóttur, móðurmóður sinni og Árna Símonarsyni manni hennar á Eystri-Hellum og síðar Arnarhóli í Gaulverjabæjarhreppi í Árnessýslu. Henni bauðst að fara í vist til Reykjavíkur á heimili Einars Kvarans rithöfundar og kynntist þar miðilsfyrirbærum. Hún starfaði sem miðill, greindi sjúkdóma gegnum síma og leitaði að týndum hlutum og spáði fyrir um atburði. Lára var jörðuð í Gaulverjabæjarkirkjugarði.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.