Karl var elsti sonur Óskars 1. Svíakonungs og Jósefínu drottningar. Hann hafði mikinn áhuga á norrænni samvinnu og samstarfi og var náinn vinur Friðriks 7. Danakonungs. Hann var mjög umbótasinnaður og studdi margvísleg framfaramál, meðal annars á sviði stjórnmála, trúfrelsis, refsilöggjafar og samgangna. Á stjórnartíð hans fengu konur kosningarétt til sveitastjórna og árið 1858 stóð hann að lagasetningu sem veitti ógiftum, fullorðnum konum fullt sjálfræði, þó fyrst í stað aðeins ef þær sóttu um það. Systir hans, Evgenía prinsessa, varð að líkindum fyrst sænskra kvenna til að njóta þeirra réttinda.
Karl var mikill áhugamaður um bókmenntir og listir, orti sjálfur ljóð og gaf út ljóðabækur. Einnig var hann listmálari og voru verk hans sýnd á sýningum sænsku listaakademíunnar. Hann var mjög skapmikill og þótti oft hryssingslegur í framkomu, kærulaus og raupsamur, en var þrátt fyrir það mjög vinsæll meðal þegna sinna.
Karl giftist Lovísu af Hollandi 19. júní1850. Hjónaband þeirra var ekki hamingjusamt, enda voru þau mjög ólík. Konungurinn var líka afar kvensamur og átti fjölmargar hjákonur. Börn þeirra voru:
Lovísa Danadrottning (1851-1926), kona Friðriks 8.
Karl (1852-1854).
Eftir fæðingu Karls prins var ljóst að Lovísa krónprinsessa gæti ekki alið fleiri börn og þegar prinsinn dó á öðru ári reyndi Karl konungur mikið að fá þingið til að breyta stjórnarskránni þannig að konur gætu erft ríkið en það tókst ekki. Þegar hann dó var það því Óskar bróðir hans sem tók við völdum. Tveir dóttursynir hans urðu þó konungar, þeir Kristján 10. Danakonungur og Hákon 5. Noregskonungur.
This browser is not supported by Wikiwand :( Wikiwand requires a browser with modern capabilities in order to provide you with the best reading experience. Please download and use one of the following browsers:
Your input will affect cover photo selection, along with input from other users.
X
Get ready for Wikiwand 2.0 🎉! the new version arrives on September 1st! Don't want to wait?
Oh no, there's been an error
Please help us solve this error by emailing us at support@wikiwand.com
Let us know what you've done that caused this error, what browser you're using, and whether you have any special extensions/add-ons installed.
Thank you!