For faster navigation, this Iframe is preloading the Wikiwand page for Skordýr.

Skordýr

Skordýr
Tímabil steingervinga: Devontímabilið - Nútími
Alibýfluga af ættbálk æðvængja
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríkið (Animalia)
Fylking: Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking: Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur: Skordýr (Insecta)
Linnaeus, 1758
Undirflokkar og ættbálkar
  • Undirflokkur Vængleysingjar (Apterygota)
Yfirættbálkur: Útvængjur (Exopterygota)
Yfirættbálkur: Innvængjur (Endopterygota)

Skordýr (fræðiheiti: Insecta) eru liðdýr í undirfylkingu sexfætla. Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra jarðarinnar með yfir 1.000.000 þekktar tegundir, fleiri en allir aðrir hópar dýra samanlagt. Þau vísindirannsaka skordýr kallast skordýrafræði. Fyrstu skordýrin koma fram á svokölluðu Devon-tímabili fyrir um 400 milljónum ára. Þar sem jörðin er 4,5 milljarða að aldri hafa skordýr aðeins verið til staðar á innan við tíunda hluta sögu jarðar. Fyrstu skordýrin voru ófleyg og um tugi milljóna ára voru aðeins til ófleyg skordýr. Fleygu skordýrin koma fram einu jarðsögulegu tímabili seinna, á svokölluðu steinkola-skeiði.

Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra jarðarinnar með yfir milljón þekktar tegundir, fleiri en allir aðrir hópar dýra samanlagt. Samanlagður fjöldi skordýrategunda (lifandi og útdauðra) er áætlaður milli sex og tíu milljónir, sem gæti verið allt að 90% allra dýrategunda sem lifað hafa á jörðinni. Skordýr er að finna í nánast hvaða umhverfi sem er, en þó eru þau fá í hafinu—þar eru önnur liðdýr algengari, þ.e. krabbadýr.

Uppbygging skordýra
AHöfuð BFrambolur CAfturbolur 
1. fálmari; 2. depilauga (neðra); 3. depilauga (efra); 4. samsett auga; 5. heilataugahnoða; 6. framliður frambols; 7. bakæð; 8. loftæðar (andop); 9. milliliður frambols; 10. afturliður frambols; 11. framvængur; 12. afturvængur; 13. miðgörn (magi); 14. baklæg æð (aorta); 15. eggjastokkur; 16. víðgirni (þarmar, endaþarmur og endaþarmsop); 17. endaþarmsop; 18. leggöng; 19. kviðhnoðu; 20. þveitispíplur; 21. ristarþófar; 22. klær; 23. ristarliður; 24. langliður; 25. femur; 26. lærleggur; 27. framgörn; 28. framtaugahnoða; 29. stofnliður; 30. munnvatnskirtill; 31. undirvélindahnoðu; 32. bitkjálkar

Líkami skordýra er liðskiptur með ytri stoðgrind, sem er að mestu úr kítíni. Líkaminn skiptist í þrjá hluta, höfuð, frambol og afturbol. Á höfðinu eru tveir fálmarar og par af samsettum augum auk einfaldari depilaugna. Skordýr hafa ekki lungu heldur loftop sem dreifa súrefni í æðar þeirra [1]

Lífsferill skordýra er afar mismunandi en flest klekjast úr eggjum. Hin óteygjanlega ytri stoðgrind skordýra takmarkar vöxt þeirra og þroski verður með hamskiptum. Dýr á fyrri þroskastigum geta verið ólík fullorðnum dýrum í vexti, hegðun og kjörlendi. Sum skordýr fara í gegnum fullkomna myndbreytingu og er eitt þroskastig þeirra þá púpustig. Skordýr sem taka ófullkominni myndbreytingu fara ekki í gegnum púpustig og verður dýr þá fullvaxta með því að fara í gegnum gyðlustig. Steingerðar leifar skordýra frá fornlífsöld benda til þess að vænghaf drekaflugna hafi getað verið 55 til 70 cm. Fjölbreyttustu skordýrahóparnir virðast hafa þróast samhliða blómum (dulfrævingum).


Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Hafa skordýr lungu? Vísindavefur, skoðað 5. september, 2019
{{bottomLinkPreText}} {{bottomLinkText}}
Skordýr
Listen to this article

This browser is not supported by Wikiwand :(
Wikiwand requires a browser with modern capabilities in order to provide you with the best reading experience.
Please download and use one of the following browsers:

This article was just edited, click to reload
This article has been deleted on Wikipedia (Why?)

Back to homepage

Please click Add in the dialog above
Please click Allow in the top-left corner,
then click Install Now in the dialog
Please click Open in the download dialog,
then click Install
Please click the "Downloads" icon in the Safari toolbar, open the first download in the list,
then click Install
{{::$root.activation.text}}

Install Wikiwand

Install on Chrome Install on Firefox
Don't forget to rate us

Tell your friends about Wikiwand!

Gmail Facebook Twitter Link

Enjoying Wikiwand?

Tell your friends and spread the love:
Share on Gmail Share on Facebook Share on Twitter Share on Buffer

Our magic isn't perfect

You can help our automatic cover photo selection by reporting an unsuitable photo.

This photo is visually disturbing This photo is not a good choice

Thank you for helping!


Your input will affect cover photo selection, along with input from other users.

X

Get ready for Wikiwand 2.0 🎉! the new version arrives on September 1st! Don't want to wait?