For faster navigation, this Iframe is preloading the Wikiwand page for Georg 3..

Georg 3.

Skjaldarmerki Hannover-ætt Konungur Stóra-Bretlands og Írlands
Hannover-ætt
Georg 3.
Georg 3.
Ríkisár 25. október 176029. janúar 1820
SkírnarnafnGeorge William Frederick
Fæddur4. júní 1738
 Norfolk-húsi, London
Dáinn29. janúar 1820 (81 árs)
 Windsor-höll, Windsor, Englandi
GröfKapella Heilags Georgs, Windsor-höll
Undirskrift
Konungsfjölskyldan
Faðir Friðrik, prins af Wales
Móðir Ágústa prinsessa af Saxe-Gotha
DrottningKarlotta af Mecklenburg-Strelitz
BörnGeorg 4., Friðrik, Vilhjálmur 4., Karlotta, Játvarður, Ágústa, Elísabet, Ernest Ágústus, Ágústus Friðrik, Adolf, María, Soffía, Oktavíus, Alfreð, Amelía

Georg 3. (George William Frederick) (4. júní 173829. janúar 1820) var konungur Stóra-Bretlands og Írlands frá 25. október 1760 til dauðadags. Hann var jafnframt hertogi og kjörfursti Brunswick-Lüneburg (Hanover) í Heilaga rómverska ríkinu og síðan konungur Hanover frá 12. október 1814. Hann var þriðji breski einvaldurinn af Hanover-ætt en sá fyrsti þeirra sem var fæddur í Bretlandi, talaði ensku að móðurmáli[1] og kom aldrei til Hanover.[2]

Georg 3. sat á valdastóli í 59 ár og var sá þjóðhöfðingi Breta sem sat lengst á valdastóli allt til ársins 1896 þegar barnabarn hans Viktoría Bretadrottning tók fram úr honum.

Líf hans og valdatíð, sem entist lengst allra breskra einvalda fram til hans tíma, einkenndust af vopnuðum átökum Breta í Evrópu, Afríku, Ameríku og Asíu. Snemma á valdatíð hans sigruðu Bretar Frakka í sjö ára stríðinu og urðu þar með stærsta Evrópuveldið í Norður-Ameríku og Indlandi. Bretland glataði hins vegar stórum hluta amerískra nýlenda sinna í bandaríska frelsisstríðinu. Frekari stríð brutust út gegn Frakklandi árið 1793 og ekki var rótt á milli ríkjanna fyrr en eftir ósigur Napóleons við Waterloo árið 1815.

Seinna á ævi sinni þurfti Georg 3. að glíma við endurtekna og brátt varanlega geðkvilla. Frá árinu 1810 var Georg 3. ófær um að sinna skyldum sínum sem þjóðhöfðingi og því var sonur hans, Georg erfðaprins, gerður ríkisstjóri þar til faðir hans lést.

Sagnfræðilegt mat á Georg 3. hefur breyst mörgum sinnum.[3] Fram á seinni hluta 20. aldar litu Bandaríkjamenn á hann sem harðstjóra. Meðal Breta var hann gerður að blóraböggli fyrir fall heimsvaldsstefnunnar.[4]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „George III“. Official website of the British monarchy. Royal Household. Sótt 18. apríl 2016.
  2. Brooke, John (1972). King George III. London: Constable, bls. 314; Fraser, Antonia (1975). The Lives of the Kings and Queen of England. London: Weidenfeld and Nicolson, bls. 277.
  3. Butterfield, Herbert (1957). George III and the Historians. London: Collins, bls. 9.
  4. Brooke, p. 269


Fyrirrennari:
Georg 2.
Konungur Bretlands og Írlands
(25. október 1760 – 29. janúar 1820)
Eftirmaður:
Georg 4.


{{bottomLinkPreText}} {{bottomLinkText}}
Georg 3.
Listen to this article

This browser is not supported by Wikiwand :(
Wikiwand requires a browser with modern capabilities in order to provide you with the best reading experience.
Please download and use one of the following browsers:

This article was just edited, click to reload
This article has been deleted on Wikipedia (Why?)

Back to homepage

Please click Add in the dialog above
Please click Allow in the top-left corner,
then click Install Now in the dialog
Please click Open in the download dialog,
then click Install
Please click the "Downloads" icon in the Safari toolbar, open the first download in the list,
then click Install
{{::$root.activation.text}}

Install Wikiwand

Install on Chrome Install on Firefox
Don't forget to rate us

Tell your friends about Wikiwand!

Gmail Facebook Twitter Link

Enjoying Wikiwand?

Tell your friends and spread the love:
Share on Gmail Share on Facebook Share on Twitter Share on Buffer

Our magic isn't perfect

You can help our automatic cover photo selection by reporting an unsuitable photo.

This photo is visually disturbing This photo is not a good choice

Thank you for helping!


Your input will affect cover photo selection, along with input from other users.

X

Get ready for Wikiwand 2.0 🎉! the new version arrives on September 1st! Don't want to wait?