Gísli H. Guðjónsson
Gísli Hannes Guðjónsson (fæddur 26. október 1947) er prófessor í réttarsálfræði við King's college í Lundúnum og rannsóknarprófessor við Háskólann í Reykjavík.
Gísli er þekktur víða um heim fyrir rannsóknir sínar og einn fárra íslenskra sálfræðinga sem hefur náð frama erlendis. Hefur hann einkum beitt rannsóknaraðferðum sínum við greiningu á áreiðanleika vitna.
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.