For faster navigation, this Iframe is preloading the Wikiwand page for
Flauelsbyltingin.
Flauelsbyltingin
Flauelsbyltingin (tékkneska: sametová revoluce) er heiti á röð friðsamlegra mótmæla sem leiddu til afnáms flokksræðiskommúnista í Tékkóslóvakíu árið 1989. Mótmælin hófust í Bratislava16. nóvember á minningarathöfn um háskólanemann Jan Opletal sem hafði verið drepinn af nasistum 50 árum fyrr. Daginn eftir var alþjóðadagur stúdenta haldinn hátíðlegur sem endaði með því að þúsundir mótmælenda héldu inn í miðborg Prag. Óeirðalögregla brást við um kvöldið og dreifði hópnum. Fljótlega tók orðrómur að berast um að einhverjir mótmælendur hefðu verið drepnir af lögreglu. 17. nóvember markar formlega upphaf mótmælanna. Næstu daga breiddust mótmælin út og almennt verkfall hófst. Mótmælendur hringluðu lyklakippum sem tákni um að þeir vildu losna við stjórn kommúnista. 29. nóvember ákvað sambandsþing Tékkóslóvakíu að afnema setningu í stjórnarskrá Tékkóslóvakíu sem kvað á um leiðtogahlutverk kommúnistaflokksins. Þar með lauk flokksræði kommúnistaflokksins í Tékkóslóvakíu formlega. Í desember var Václav Havel kjörinn forseti landsins og í júní árið eftir voru fyrstu frjálsu þingkosningarnar haldnar.
This browser is not supported by Wikiwand :( Wikiwand requires a browser with modern capabilities in order to provide you with the best reading experience. Please download and use one of the following browsers:
Your input will affect cover photo selection, along with input from other users.
X
Get ready for Wikiwand 2.0 🎉! the new version arrives on September 1st! Don't want to wait?
Oh no, there's been an error
Please help us solve this error by emailing us at support@wikiwand.com
Let us know what you've done that caused this error, what browser you're using, and whether you have any special extensions/add-ons installed.
Thank you!