Ernst Mach
Ernst Mach (18. febrúar 1838 – 19. febrúar 1916) var austurrískur eðlisfræðingur og heimspekingur, sem er þekktastur fyrir framlag sitt til eðlisfræðinnar og rannsókna á höggbylgjum. Vísindaheimspeki hans hafði töluverð áhrif á rökfræðilega raunhyggju og gagnrýni hans á Newton varðaði veginn fyrir afstæðiskenningu Einsteins.
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.