Epli
Epli | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ýmsar eplasortir
| ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Malus domestica Borkh. |
Epli er aldinávöxtur eplatrésins (fræðiheiti: Malus domestica) sem er af rósaætt. Eplatré eru lauftré sem komu upprunalega frá Mið-Asíu. Trjátegundina Malus sieversii er enn í dag hægt að finna í fjallendum Mið-Asíu.
Til eru yfir 7.500 þekkt plöntuafbrigði af eplum. Epli er sá ávöxtur sem er hvað mest ræktaður í heiminum. Þau eru ýmist með gult, grænt eða rautt hýði eða þá að litur þeirra er blanda af þessum litum. Epli eru notuð í margvíslega matargerð, þau eru elduð, borðuð fersk og eplasafi og eplasíder eru vinsælir drykkir.
Epli koma fyrir í goðsögum og trúarbrögðum margra menningarheima.
Árið 2010 var erfðamengi eplisins ráðið sem varð til þess að framfarir urðu á sviði læknisfræði og sértækrar ræktunar epla. Það ár er áætlað að um 69 milljón tonn af eplum hafi verið ræktuð í heiminum og þar af hafi um helmingur verið ræktaður í Kína. Næst á eftir koma Bandaríkin með um 6% framleiðslunnar, því næst Tyrkland, Ítalía, Indland og loks Pólland.
Menningarlegar vísanir
[breyta | breyta frumkóða]Barkakýlið sem skagar út úr hálsi karla stundum kallað adamsepli og á það rætur í þjóðsagnakenndri síðari tíma skýringu á fyrstu Mósebók og brottrekstri Adams og Evu úr aldingarðinum Eden. Oft er sagt að skilningstréð hafi verið eplatré og eplið hafi staðið í Adam þegar hann beit í það í óþökk guðs. Í hebreskri útgáfu Biblíunnar kemur ekki fram hvers konar ávöxt var um að ræða en misskilninginn má rekja[heimild vantar] til þýðingar á latneska orðinu malum sem merkir bæði illsku og epli. Orðið er þó ekki notað í latneskri þýðingu Biblíunnar því þar er notað orðið fructus, sem merkir „ávöxtur“.
Í norrænni goðafræði er sagt frá því í upphafi Skáldskaparmála Eddu Snorra Sturlusonar að gyðjan Iðunn hafi átt að gæta gullepla sem tryggðu goðunum eilífa æsku.
Í grískri goðafræði koma epli meðal annars við sögu í frásögninni af þrætueplinu og gullnu eplum Vesturdísanna.
Epli koma við sögu í mörgum þekktum ævintýrum meðal annars sögunni af Mjallhvíti þar sem vonda stjúpan gaf Mjallhvíti eitrað epli.
Ýmsar sortir af eplum
[breyta | breyta frumkóða]-
Discovery
-
Gala
-
Red Delicious
-
Granny Smith
-
Fuji
-
Golden delicious
-
Jonagold
-
Granny Smith
-
McIntosh
-
Ananasrenette
-
Alice
-
Cox Pomona
-
Lobo
-
James Grieve
-
Summerred
-
Pink Lady
-
Belle de Boskoop
Nokkrar sortir sem eru notaðar á Íslandi[1]
[breyta | breyta frumkóða]-
Aroma
-
Stor Klar Astrakan
-
Gubbäpple
-
Summerred
-
Hampus
-
Transparente Blanche
-
Sävstaholm
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Nátthagi http://natthagi.is/avaxtayrkinanariupplysingarfranatthaga2010-11.pdf Geymt 21 febrúar 2016 í Wayback Machine
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.