Dynjandi
Dynjandi | |
---|---|
Staðsetning | Arnarfjörður, Vestfirðir, Ísland |
Hnit | 65°43′57″N 23°11′55″V / 65.7325192°N 23.1985946°V[1] |
Hæð | 100 m |
Vatnsrás | Dynjandisá |
Dynjandi (eða Fjallfoss) er 100 metra hár foss í Arnarfirði á Vestfjörðum Íslands. Fossinn kemur ofan af Dynjandisheiði og fyrir neðan hann er einnig eyðibýli sem heitir Dynjandi. Á bjargbrún er fossinn 30 metra breiður en 60 metra breiður neðst. Fleiri fossar eru í fossaröðinni: Bæjarfoss, Hundafoss, Göngumannafoss, Strompglúfrafoss og Hæstahjallafoss. Fossinn var friðlýstur árið 1980.
Meðal sumarrennsli Dynjandisár er 2 til 8 rúmmetrar en meðal vetrarrennsli er 1 til 4 rúmmetrar vatns á sekúndu. Upptök sín á áin í smávötnum á Dynjandisheiði.
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- „Dynjandisfoss“. Sótt 1. desember 2005.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- „Foss á Vestfjörðum er bæði kallaður Dynjandi og Fjallfoss. Hvort nafnið er réttara og af hverju?“. Vísindavefurinn.
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.