Dalvík
65°58′21″N 18°31′55″V / 65.97250°N 18.53194°V
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d8/Dalv%C3%ADk_depuis_le_Nord-Ouest.jpg/300px-Dalv%C3%ADk_depuis_le_Nord-Ouest.jpg)
Dalvík er sjávarpláss við Eyjafjörð, í mynni Svarfaðardals í Dalvíkurbyggð. Bærinn var upphaflega innan Svarfaðardalshrepps, en var gerður að sérstökum hreppi 1. janúar 1946. Dalvík fékk kaupstaðarréttindi 22. apríl 1974. Íbúar í Dalvíkurbyggð (Dalvík, Litli-Árskógssandur og Hauganes) voru 1.860 í janúar árið 2022.
Eitt og annað
[breyta | breyta frumkóða]- 2. júní árið 1934 varð jarðskjálfti við Eyjafjörð sem olli miklu tjóni á Dalvík og um 200 manns urðu heimilislausir. [1]. Upptök hans voru skammt frá byggðinni. Skjálfti þessi er nefndur Dalvíkurskjálftinn.
- Þann 7. júní 1998 sameinuðust Dalvíkurkaupstaður og Svarfaðardalshreppur á ný ásamt Árskógshreppi undir nafninu Dalvíkurbyggð.
- Fiskidagurinn mikli var haldinn í ágúst ár frá 2001 til 2019, og 2023. Bæjarbúar buðu hátíðargestum upp á fiskisúpu og fyrirtæki gáfu hverjum sem vildi að smakka á sjávarafurðum sínum án endurgjalds. Hátíðinni lauk jafnan með miklum útitónleikum og flugeldasýningu. [2]
- Gísli, Eiríkur, Helgi, Kaffihús/bar og sögusetur um Bakkabræður.
- Sýndarvélin sem Android-stýrikerfið fyrir farsíma keyrir á nefnist Dalvik eftir bænum Dalvík þaðan sem höfundur hennar, Dan Bornstein, rekur ættir sínar.
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
-
Ungó, aðsetur Leikfélags Dalvíkur. Kaffihúsið GÍsli, Eiríkur, Helgi er í gráa húsinu t.h.
-
Dalvíkurkirkja
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Um 300 manns heilmilislaus; grein í 24. stundir 2008
- ↑ Fiskidagurinn mikli lagður af Rúv, 6/11 2023
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/ce/Flag_of_Iceland.svg/40px-Flag_of_Iceland.svg.png)
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.