For faster navigation, this Iframe is preloading the Wikiwand page for
Bylgjupappi.
Bylgjupappi
Bylgjupappi er tegund af pappa sem er unnin þannig að bylgjuð pappaplata er límd á eina eða milli tveggja sléttra pappaplatna. Algengt er að nota bylgjupappa sem umbúðir utan um vörur til að verja þær hnjaski. Pappaplöturnar sem bylgjupappi er gerður úr eru vanalega yfir 0,25 mm að þykkt.
Árið 1856 var fengið einkaleyfi á bylgjupappír sem þá var notuð sem líning fyrir háa hatta en þann 20. desember1871 fékk Albert Jones í New York einkaleyfi á bylgjupappa en hann notaði þannig pappa til að vefja utan um flöskur og glerluktir. Fyrsta vélin til að fjöldaframleiða bylgjupappír var smíðuð árið 1874. Maður af skoskum ættum Robert Gair að nafni fann upp aðferð til að framleiða pappakassa í kringum 1890 þannig að kassarnir voru sniðnir út úr bylgjupappa og brotnir saman í kassa. Robert Gair var prentari og vann við að gera bréfpoka og dag einn þegar hann var að prenta pokana fór einn málmhlutur sem vanalega var notaður til að færa til poka úr stað og skar pokana í staðinn að færa þá til. Gair uppgötvaði þannig að með að skera og brjóta (mynda brot í) pappann um leið þá væri hægt að búa til pappabox sem auðvelt væri að setja saman. Auðvelt var að yfirfæra þessa aðferð einnig á bylgjupappa. Bylgjupappi var upphaflega notaður til að pakka gleri og pottum. Í kringum 1955 var farið að nota bylgjupappa til að pakka grænmeti.
This browser is not supported by Wikiwand :( Wikiwand requires a browser with modern capabilities in order to provide you with the best reading experience. Please download and use one of the following browsers:
Your input will affect cover photo selection, along with input from other users.
X
Get ready for Wikiwand 2.0 🎉! the new version arrives on September 1st! Don't want to wait?
Oh no, there's been an error
Please help us solve this error by emailing us at support@wikiwand.com
Let us know what you've done that caused this error, what browser you're using, and whether you have any special extensions/add-ons installed.
Thank you!