Bruninn í Kaupmannahöfn árið 1728
Bruninn í Kaupmannahöfn árið 1728 eða Kaupmannahafnarbruninn er mesti eldsvoði í sögu Íslands og Kaupmannahafnar. Eldurinn braust út þann 20. október 1728, um kvöldið, og geisaði fram að morgni 23. október. Eldurinn lagði u.þ.b. 28% borgarinnar í rúst.
Fjöldi húsa brann til grunna eins og Þrenningarkirkjan við Sívalaturn. Mikill hluti bókasafns Árna Magnússonar, fornfræðings og bókasafnara, fórst í eldinum, en megninu af skinnhandritum tókst að bjarga.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- „Hvaða handrit Íslendinga töpuðust í brunanum í Kaupmannahöfn?“. Vísindavefurinn.
- Bruninn mikli; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1928
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.