Úlfarsá
Úlfarsá er á sem rennur úr Hafravatni. Áin er um 7 km löng og rennur í bugðum og sveigjum til vesturs og fellur til sjávar í Blikastaðakró. Úlfarsá er yfirleitt 10–20 metra breið, tær og ekki straumþung. Í ánni eru víða fossar og flúðir þeirra á meðal eru Fossaleynisfossar undir Keldnaholti og Króarfoss við ósinn. Árbakkar eru vel grónir. Ofan við Fossaleynisfossa var gerð stífla vegna vatnstöku Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi og ofan við stífluna er dálítið lón. Í Úlfarsá er laxveiði.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Hverfi | |
---|---|
Stjórnsýsla | |
Grunnskólar |
|
Samgöngur | |
Samtök | |
Sundlaugar | |
Menning | |
Útivist og afþreying | |
Eyjar | |
Ár og vötn | |
Vinabæir | |
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.