Íþróttabandalag Akureyrar
Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) er héraðssamband íþróttafélaga á Akureyri. ÍBA var stofnað 20. desember 1944. ÍBA gætir hagsmuna íþróttahreyfingarinnar á Akureyri gagnvart opinberum aðilum og vinnur að styrkingu og uppbyggingu íþróttastarfsemi héraðsins. Innan ÍBA er skráð 21 aðildarfélag og yfir 40 íþróttagreinar eru í boði fyrir iðkendur.[1]
Knattspyrna
[breyta | breyta frumkóða]KA og Þór voru sameinuð undir merki ÍBA á árunum 1944 til 1974 og var skipað úrvali leikmanna Akureyrarfélaganna. Félagið spilaði 17 tímabil í Úrvalsdeild karla.
Fyrsti leikur úrvalsliðs Akureyrarfélaganna tveggja, KA og Þórs, var við Íslands- og Reykjavíkurmeistara Vals í öndverðum júlí 1942. Liðin reyndu tvisvar með sér, Akureyringar unnu annan leikinn en töpuðu hinum. Þessi úrslit gáfu sameiningarhugmyndum manna byr undir báða vængi og 1943 áttu Akureyringar í fjórða sinnið lið á Íslandsmótinu í knattspyrnu. En nú sigldi það undir flaggi Íþróttaráðs Akureyrar en ekki KA eins og í öll fyrri skiptin.[2]
Árið eftir var Íþróttabandalag Akureyrar stofnað og 1946 fór knattspyrnulið undir merkjum þess fyrst á Íslandsmót.
Frá 1955 til 1974 tók lið ÍBA ávallt þátt í íslandsmóti karla í knattspyrnu. Árið 1974 hættu félögin samstarfi sínu og urðu aftur að KA og Þór.[3]
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Íþróttahéruð ÍSÍ | |
---|---|
Austurland |
|
Höfuðborgarsvæðið | |
Norðurland | |
Reykjanes |
|
Suðurland |
|
Vesturland |
|
Vestfirðir |
|
Text is available under the CC BY-SA 4.0 license; additional terms may apply.
Images, videos and audio are available under their respective licenses.